- Síðasta punktablogg birtist 10 janúar síðastliðinn, þegar u.þ.b. ein vika var liðin af skólanum. Það mætti halda að það hafi verið nóg að gera síðustu tvo og hálfan mánuð! Mér hefur a.m.k. ekki leiðst.
- Ég hafði það af að panta mér nýjan skammt af nafnspjöldum (frá moo.com) og setja upp nýja vefsíðu (www.gunnarfreyr.com) – sem illu heilli virðist ekki koma upp hjá öllum heima á Íslandi. Þið megið gjarnan prófa og láta mig vita ef þetta virðist vera eins og leðja, og ef svo er megið þið gjarnan segja mér hjá hvaða netveitu þið eruð. Ég bara verð að komast að því hvar hnífurinn stendur í kúnni.
- Í fyrsta tímanum í auglýsingaljósmyndun vorum við spurð hvaðan við værum og ég sagði auðvitað satt og rétt frá, ég væri frá Íslandi. Kennarinn, Gregg Eligh, spurði mig þá hvort ég þekkti Röggu, og jújú, ég gat ekki annað en viðurkennt það. Þá ljóstraði hann því upp að hún væri einn af hans uppáhaldsnemendum, og væri fantagóður ljósmyndari. Ekki nóg með það, heldu bætti hann því við, fyrir framan allan bekkinn, að þarna hefði ég ansi stóra skó til að fylla upp í (jájá, ég veit, þetta er ekki íslenskt orðatiltæki). Takk, Gregg. Það var ekki eins og ég vissi þetta ekki fyrir, en ég hafði fram að þessu haldið því fyrir sjálfan mig ;-)
- Í blaðaljósmyndunaráfanganum var eitt verkefnið heimildaljósmyndun, eða documentary photography. Ég fékk leyfi til að fara á veitingastað eins fínasta golfvallar borgarinnar, Royal Colwood Golf Club. Þar var ég á föstudegi, frá hálftvö til rúmlega níu, og myndaði eldhússtörfin á Gourmet Dinner Night í gríð og erg. Ég fór heim með 918 teknar myndir og átti svo að skila inn fimm myndum, sem þurftu að sýna einhverja sögu. Það var ansi erfitt að fækka myndunum, sérstaklega þegar ég var kominn niður fyrir 30 stykki.
- Hófí er ekki beinlínis búin að vera að slugsa í skólanum. Hún var með A+ í öllu á síðustu önn, sem leiddi til þess að hún er á forsetalista skólans á þessari önn. Ekki amalegt það. Á listanum eru þeir sem voru með 8.0 eða hærra í meðaleinkunn, en það vill svo til að Hófí var með 9.0, svo mér þætti fróðlegt að sjá hvernig listinn liti út ef mörkin væri hækkuð.
- Það kom enginn vetur í Victoria í þetta skiptið. Hjá okkur var snjóföl í einn heilan dag og tvo morgna. Það var allt og sumt. Jú, það var stundum hrollkalt, en enginn vetur.
- Næstu tvær vikur verð ég lærlingur hjá Black Press útgáfufyrirtækinu, sem gefur út fjöldann allan af smærri dagblöðum, m.a. á Vancouver Island. Það voru um 10 manns sem sóttust eftir að komast að sem lærlingar hingað og þangað, m.a. í Calgary og Whistler, og við vorum fimm sem vorum valin. Spenntur? Ekki laust við það.
- Þeir sem þekkja mig vita að ég nánast fullkomlega tískuheftur. Því kveið ég aðeins fyrir tískuáfanganum ógurlega. Þetta var tveggja vikna boot camp, kennt af Brian Yungblut. Maðurinn sá lagði það á sig að læra nöfn allra nemendanna áður en hann hitti okkur, nokkuð sem veitti honum strax nokkur prik í kladdann. Tískuáfanginn kom og fór, ég skilaði inn mínum verkefnum, og svo þegar ég sá eiknunnalistann í gær brá mér heldur en ekki. Ég var með 9,32 út úr áfangum og var hæstur! Það hljóta að hafa verið gerð mistök.
- Í vor verður haldin ljósmyndasýning nemenda. Sýningin heitir Light Sensitive, og eins og lög gera ráð fyrir verður sýningin auglýst út um alla borg. Nemendur voru beðnir um að senda inn mynd til að nota á auglýsingaplakötin, og svo fór að hátt í 40 myndir voru sendar inn. Mér þótti ekki leiðinlegt að frétta að mín mynd hlaut náð fyrir augum dómnefndar, og verður notuð á plakatið.
- Meira seinna, og vonandi (mín vegna) ekki svona langt þangað til næst.
- P.S. Hér er annars myndin sem verður á plakatinu:

P28: Tíska, stórir skór og plakat
25 03 2010Ummæli : 10 ummæli »
Merki: punktablogg
Flokkar : Fjölmiðlar, Fjölskyldan, Ljósmyndun


