P28: Tíska, stórir skór og plakat

25 03 2010
  • Síðasta punktablogg birtist 10 janúar síðastliðinn, þegar u.þ.b. ein vika var liðin af skólanum.  Það mætti halda að það hafi verið nóg að gera síðustu tvo og hálfan mánuð!  Mér hefur a.m.k. ekki leiðst.
  • Ég hafði það af að panta mér nýjan skammt af nafnspjöldum (frá moo.com) og setja upp nýja vefsíðu (www.gunnarfreyr.com) – sem illu heilli virðist ekki koma upp hjá öllum heima á Íslandi.  Þið megið gjarnan prófa og láta mig vita ef þetta virðist vera eins og leðja, og ef svo er megið þið gjarnan segja mér hjá hvaða netveitu þið eruð.  Ég bara verð að komast að því hvar hnífurinn stendur í kúnni.
  • Í fyrsta tímanum í auglýsingaljósmyndun vorum við spurð hvaðan við værum og ég sagði auðvitað satt og rétt frá, ég væri frá Íslandi.  Kennarinn, Gregg Eligh, spurði mig þá hvort ég þekkti Röggu, og jújú, ég gat ekki annað en viðurkennt það.  Þá ljóstraði hann því upp að hún væri einn af hans uppáhaldsnemendum, og væri fantagóður ljósmyndari.  Ekki nóg með það, heldu bætti hann því við, fyrir framan allan bekkinn, að þarna hefði ég ansi stóra skó til að fylla upp í (jájá, ég veit, þetta er ekki íslenskt orðatiltæki).  Takk, Gregg.  Það var ekki eins og ég vissi þetta ekki fyrir, en ég hafði fram að þessu haldið því fyrir sjálfan mig ;-)
  • Í blaðaljósmyndunaráfanganum var eitt verkefnið heimildaljósmyndun, eða documentary photography.  Ég fékk leyfi til að fara á veitingastað eins fínasta golfvallar borgarinnar, Royal Colwood Golf Club.  Þar var ég á föstudegi, frá hálftvö til rúmlega níu, og myndaði eldhússtörfin á Gourmet Dinner Night í gríð og erg.  Ég fór heim með 918 teknar myndir og átti svo að skila inn fimm myndum, sem þurftu að sýna einhverja sögu.  Það var ansi erfitt að fækka myndunum, sérstaklega þegar ég var kominn niður fyrir 30 stykki.
  • Hófí er ekki beinlínis búin að vera að slugsa í skólanum.  Hún var með A+ í öllu á síðustu önn, sem leiddi til þess að hún er á forsetalista skólans á þessari önn.  Ekki amalegt það.  Á listanum eru þeir sem voru með 8.0 eða hærra í meðaleinkunn, en það vill svo til að Hófí var með 9.0, svo mér þætti fróðlegt að sjá hvernig listinn liti út ef mörkin væri hækkuð.
  • Það kom enginn vetur í Victoria í þetta skiptið.  Hjá okkur var snjóföl í einn heilan dag og tvo morgna.  Það var allt og sumt.  Jú, það var stundum hrollkalt, en enginn vetur.
  • Næstu tvær vikur verð ég lærlingur hjá Black Press útgáfufyrirtækinu, sem gefur út fjöldann allan af smærri dagblöðum, m.a. á Vancouver Island.  Það voru um 10 manns sem sóttust eftir að komast að sem lærlingar hingað og þangað, m.a. í Calgary og Whistler, og við vorum fimm sem vorum valin.  Spenntur?  Ekki laust við það.
  • Þeir sem þekkja mig vita að ég nánast fullkomlega tískuheftur.  Því kveið ég aðeins fyrir tískuáfanganum ógurlega.  Þetta var tveggja vikna boot camp, kennt af Brian Yungblut.  Maðurinn sá lagði það á sig að læra nöfn allra nemendanna áður en hann hitti okkur, nokkuð sem veitti honum strax nokkur prik í kladdann.  Tískuáfanginn kom og fór, ég skilaði inn mínum verkefnum, og svo þegar ég sá eiknunnalistann í gær brá mér heldur en ekki.  Ég var með 9,32 út úr áfangum og var hæstur!  Það hljóta að hafa verið gerð mistök.
  • Í vor verður haldin ljósmyndasýning nemenda.  Sýningin heitir Light Sensitive, og eins og lög gera ráð fyrir verður sýningin auglýst út um alla borg.  Nemendur voru beðnir um að senda inn mynd til að nota á auglýsingaplakötin, og svo fór að hátt í 40 myndir voru sendar inn.  Mér þótti ekki leiðinlegt að frétta að mín mynd hlaut náð fyrir augum dómnefndar, og verður notuð á plakatið.
  • Meira seinna, og vonandi (mín vegna) ekki svona langt þangað til næst.
  • P.S. Hér er annars myndin sem verður á plakatinu: Chili hálsmen.

Actions

Information

10 responses

25 03 2010
Matti

Hæ kæra fjölskylda, gaman að lesa þetta. Þið standið ykkur öll vel enda ekki við öllu að búast.
Skoðaði nýju heimasíðuna, rann upp hjá mér og flottar myndir. Hlakka til að sjá meira síðar.
Bestu kveðjur til ykkar allra frá Matta.

25 03 2010
gunnarfreyr

Hæ hæ, takk fyrir “kvittið” og heimsóknina!

25 03 2010
Hallur

Ykkur gengur allt of vel þarna… svei mér ef það þyrfti ekki að bulla meira í ykkur!… :D

25 03 2010
gunnarfreyr

Komdu fagnandi – hvort sem er á Skype eða bara í heimsókn ;-)

25 03 2010
Inga Heiða

Hæ hæ .. þetta er greinilega árið ykkar. Þið blómstrið bara þarna úti, ekkert smá góðar fréttir. Gaman að fylgjast með ykkur.

26 03 2010
Gunnar Freyr

Veistu, ég held það bara :-) Takk, sömuleiðis!

26 03 2010
hildigunnur

Gaman að sjá hvað vel gengur – ég fæ hins vegar ekki síðuna upp hjá mér. Er á ljósleiðara frá Vodafone – á Firefox á Mac OS X 4.11

26 03 2010
Gunnar Freyr

Takk, Hildigunnur, hringurinn þrengist óðum. Mér sýnist Vodafone ljós grunsamlegast í bili.

27 03 2010
Steini

Flott mynd, gaman að sjá hvað öllum gengur vel. Síðan virkar hjá mér.

29 03 2010
Björg

Frábært til hamingju með þetta allt, síðan rennur upp hjá mér, glæsileg

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.