- Við fórum í okkar fyrstu útilegu fyrir rúmri viku síðan, ásamt Sif og Sigurjóni og krökkunum þeirra. Við tjölduðum í Gordon Bay við Cowichan vatn. Okkur tókst að draga Sunnu með okkur, en þegar hún vaknaði fyrri morguninn var hún nær dauða en lífi af kulda (að hennar mati) og ákvað að sofa aldrei aftur í tjaldi. Okkur tókst nú að telja hana á að gista með okkur eina nótt í viðbótar, og það gekk betur í það skiptið.
- Ég hlustaði ekki á elskulega eiginkonu mína á laugardeginum við vatnið, bar s.s. ekki á mig sólarvörn. Það liðu fjórir dagar þar til ég gat farið í lokaða skó sársaukalaust.
- Nú er ég útskrifaður ljósmyndari. Útskriftin var ansi frjálsleg og skemmtileg, og þó einkunnir skipti kannski ekki öllu máli, þá get ég ekki annað en verið stoltur af því að ég var með rétt rúmlega 90% í lokaeinkunn.
- Miðað við höfðatölu áttu Íslendingar langflesta fulltrúa við athöfnina, enda vorum við átta talsins.
- Ekki vann ég til neinna verðlauna, en ég held að ég geti þó sagt að ég hafi verið með bestu ræðuna ;-)
- Útskriftarverkefnið mitt var 13 síðna portfolio með matarmyndum. Þið getið sótt pdf skjal með myndunum, nú eða skoðað þær hér aftast í færslunni.
- Hjá okkur eru góðir gestir, og á næstu dögum ætlum við að skoða okkur um í Klettafjöllunum. Af þeirri ferð segi ég betur seinna. Við höfum aðeins sýnt þeim það helsta hér í nágrenninu, en eigum heilmargt eftir.
- Hér eru annars myndirnar:
P30: Útskrift, útilega og portfolio
21 06 2010Ummæli : 13 ummæli »
Flokkar : Ljósmyndun
P29: Portfolio, atvinnuleyfisumsókn og yfirvofandi útskrift
9 06 2010- Já, ég veit að það er kominn júní, en mér finnst ég bara verði að minnast á að við kíktum á Ólympíuleikana í Vancouver í febrúar síðastliðnum. Skelltum okkur í einn dag til að draga að okkur Ólympíuandann, og vorum stálheppin að komast heim með síðustu ferjunni. Af rælni keyptum við miða til baka um borð í ferjunni, til að vera nú örugg að komast með rútunni. Það sem ég áttaði mig ekki á var að ég var að kaupa ferjumiða í leiðinni. Fannst verðið reyndar grunsamlega hátt, en pældi ekkert of mikið í því.
- Við eigum til að hraðkæla kókdósir í frystinum. Mér tókst svo að gleyma þremur slíkum þar inni of lengi. Þær sprungu allar. Sú sjón var ekki fögur. Lítið á þetta sem forvarnarhluta þessarar bloggfærslu.
- Hófí kláraði seinni önnina þann 12. apríl og verður í fríi þar til í september. Henni fannst tilhugsunin hræðileg til að byrja með, en er smátt og smátt að uppgötva að þetta er hið besta mál.
- Hér er svo endurtekning frá síðustu færslu: Hófí var með A+ í öllum áföngum á önninni og er á forsetalistanum. Það eru þá tvær annir í röð sem hún hefur rúllað upp.
- Nú er að koma að útskrift hjá mér. Ég útskrifast s.s. sem ljósmyndari þann 17. júní. Magnað alveg hreint, hvað tíminn hefur liðið hratt.
- Ég var valinn af samnemendum mínum til að halda ræðu við útskriftina, fyrir hönd minnar deildar. Ég er upp með mér að hafa verið valinn, en mér finnst það samt ansi skondið að útlendingurinn ég hafi verið valinn til þess arna.
- Lokaverkefnið okkar er 12-15 síðna portfolio með myndefni að eigin vali. Eða svona hérumbil. Einhverjir tóku fyrir tískumyndir, aðrir almennar portraitmyndir, enn aðrir arkitektúr, svo voru einhverjir með samtíning. Ég ákvað hins vegar að taka myndir af mat. Og já, ég þyngdist eitthvað þessar rúmu tvær vikur sem ég var að taka þær myndir. Samt minna en ég átti von á.
- Eins stressaður og ég var fyrir portfolio vinnunni (við lærum í raun ekkert í matarljósmyndun), þá reyndist það stress óþarft. Mér gekk mjög vel að mynda, Hófí hjálpaði mér heilmikið, bæði með því að stílísera, halda reflectorum og baka pönnukökur, og svo fékk ég inni á nokkrum veitingastöðum.
- Svo skemmtilega vill til að við fáum góða gesti á næstu dögum, og því verða alls átta Íslendingar viðstaddir útskriftina. Ég veit ekki hvort það er met, en það hlýtur að vera nálægt því.
- Já, annars, ég set ekki portfolioið á netið fyrr en eftir útskrift. Ég fæ að vita einkunnina fyrir það daginn fyrir útskrift og veit þá hvort ég á að mæta brosandi eða með skeifu á útskriftina. Þangað til getið þið kíkt á enska bloggið, ég setti inn nokkrar matarmyndir þar.
- Reyndar hef ég sáralitlar áhyggjur af því hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég er nú þegar með eitt verkefni í höndunum, fyrir slökkviliðið hér í View Royal (á morgun, vel að merkja), og ef allt gengur vel mun ég taka að mér ansi stórt verkefni fyrir Vancouver City Dance Theatre, nýtt danskompaní í Vancouver. Ég var í Vancouver síðasta sunnudag að mynda rúmlega 30 manna dansprufu, sem nokkurs konar forsmekk að því sem (vonandi) koma skal. Ég segi betur frá því þegar eitthvað er fast í hendi.
- Annars þarf ég að fara að koma mér í að útbúa samninga og fleira til að undirbúa það að reka fyrirtækið Gunnar Freyr Photography hér í Bresku Kólumbíu. Atvinnuleyfisumsókn hefur verið send inn og ég á von á að fá jákvætt svar eigi síðar en 4. júlí, jafnvel fyrr. Ég á s.s. ekki von á því að fá neikvætt svar. Og hana nú!
- Við Márus höfum notið þess síðustu vikur að geta horft á úrslitakeppni NBA fyrir kvöldmat, þ.e. byrjað þá og hætt um níuleytið. Við kunnum báðir ansi vel við það.
- Annars erum við öll bara hress :-)
Ummæli : 6 ummæli »
Flokkar : Bækur, Fjölskyldan, Ljósmyndun















