P30: Útskrift, útilega og portfolio

21 06 2010
  • Við fórum í okkar fyrstu útilegu fyrir rúmri viku síðan, ásamt Sif og Sigurjóni og krökkunum þeirra.  Við tjölduðum í Gordon Bay við Cowichan vatn.  Okkur tókst að draga Sunnu með okkur, en þegar hún vaknaði fyrri morguninn var hún nær dauða en lífi af kulda (að hennar mati) og ákvað að sofa aldrei aftur í tjaldi.  Okkur tókst nú að telja hana á að gista með okkur eina nótt í viðbótar, og það gekk betur í það skiptið.
  • Ég hlustaði ekki á elskulega eiginkonu mína á laugardeginum við vatnið, bar s.s. ekki á mig sólarvörn.  Það liðu fjórir dagar þar til ég gat farið í lokaða skó sársaukalaust.
  • Nú er ég útskrifaður ljósmyndari.  Útskriftin var ansi frjálsleg og skemmtileg, og þó einkunnir skipti kannski ekki öllu máli, þá get ég ekki annað en verið stoltur af því að ég var með rétt rúmlega 90% í lokaeinkunn.
  • Miðað við höfðatölu áttu Íslendingar langflesta fulltrúa við athöfnina, enda vorum við átta talsins.
  • Ekki vann ég til neinna verðlauna, en ég held að ég geti þó sagt að ég hafi verið með bestu ræðuna ;-)
  • Útskriftarverkefnið mitt var 13 síðna portfolio með matarmyndum.  Þið getið sótt pdf skjal með myndunum, nú eða skoðað þær hér aftast í færslunni.
  • Hjá okkur eru góðir gestir, og á næstu dögum ætlum við að skoða okkur um í Klettafjöllunum.  Af þeirri ferð segi ég betur seinna.  Við höfum aðeins sýnt þeim það helsta hér í nágrenninu, en eigum heilmargt eftir.
  • Hér eru annars myndirnar:

Mojito.

Olía, pestó, sólþurrkaðir tómatar, ólífur...

Svínakjöt og baunir.

Íslenskar pönnukökur - sem nokkrir hafa þegar pantað að smakka.

Kaffilist.

Handgerðar súkkulaðitrufflur.

Svartbaunasúpa, rauðrófusúpa og beygla með reyktum laxi.

Bláber og ávaxtasmúðí.

Sushi.

Steik og humar.

Kókoskaka og ostakaka.

Brúðkaupsmatur.

Creme brulee.








Follow

Get every new post delivered to your Inbox.