P30: Útskrift, útilega og portfolio

21 06 2010
  • Við fórum í okkar fyrstu útilegu fyrir rúmri viku síðan, ásamt Sif og Sigurjóni og krökkunum þeirra.  Við tjölduðum í Gordon Bay við Cowichan vatn.  Okkur tókst að draga Sunnu með okkur, en þegar hún vaknaði fyrri morguninn var hún nær dauða en lífi af kulda (að hennar mati) og ákvað að sofa aldrei aftur í tjaldi.  Okkur tókst nú að telja hana á að gista með okkur eina nótt í viðbótar, og það gekk betur í það skiptið.
  • Ég hlustaði ekki á elskulega eiginkonu mína á laugardeginum við vatnið, bar s.s. ekki á mig sólarvörn.  Það liðu fjórir dagar þar til ég gat farið í lokaða skó sársaukalaust.
  • Nú er ég útskrifaður ljósmyndari.  Útskriftin var ansi frjálsleg og skemmtileg, og þó einkunnir skipti kannski ekki öllu máli, þá get ég ekki annað en verið stoltur af því að ég var með rétt rúmlega 90% í lokaeinkunn.
  • Miðað við höfðatölu áttu Íslendingar langflesta fulltrúa við athöfnina, enda vorum við átta talsins.
  • Ekki vann ég til neinna verðlauna, en ég held að ég geti þó sagt að ég hafi verið með bestu ræðuna ;-)
  • Útskriftarverkefnið mitt var 13 síðna portfolio með matarmyndum.  Þið getið sótt pdf skjal með myndunum, nú eða skoðað þær hér aftast í færslunni.
  • Hjá okkur eru góðir gestir, og á næstu dögum ætlum við að skoða okkur um í Klettafjöllunum.  Af þeirri ferð segi ég betur seinna.  Við höfum aðeins sýnt þeim það helsta hér í nágrenninu, en eigum heilmargt eftir.
  • Hér eru annars myndirnar:

Mojito.

Olía, pestó, sólþurrkaðir tómatar, ólífur...

Svínakjöt og baunir.

Íslenskar pönnukökur - sem nokkrir hafa þegar pantað að smakka.

Kaffilist.

Handgerðar súkkulaðitrufflur.

Svartbaunasúpa, rauðrófusúpa og beygla með reyktum laxi.

Bláber og ávaxtasmúðí.

Sushi.

Steik og humar.

Kókoskaka og ostakaka.

Brúðkaupsmatur.

Creme brulee.


Actions

Information

13 responses

21 06 2010
Sigrún Þöll

Til hamingju með áfangan!!!!

23 06 2010
Gunnar Freyr

Takk, Sigrún!

22 06 2010
hildigunnur

Til hamingju!

Maður verður verulega svangur að skoða þessar myndir.

23 06 2010
Gunnar Freyr

Takk, Hildigunnur. Gott að heyra, ég vona að þú hafir fengið þér vel að borða ;-)

22 06 2010
lovisa

Stórglæsilegar myndir!! til hamingju með þetta allt saman!

23 06 2010
Gunnar Freyr

Takk, Lovísa!

23 06 2010
Björg

Glæsilegt, hlakka til að sjá meira.

23 06 2010
Gunnar Freyr

Takk, Björg!

23 06 2010
Ásdís

Enn og aftur slefa ég yfir þessum myndum :)
(Hvað eru annars “ólfíur”? Eitthvað skylt Fíusól?)

Svo komst ég ekki hjá því að sjá eitthvað tvírætt, jafnvel dónalegt, við steik&humar-myndina. Skamm Ásdís! ;)

25 06 2010
Gunnar Freyr

Mikið er það gott :-) Annars eiga “ólfíur” ekkert skylt við Fíusól, þetta hljómar frekar eins og einhver útúrdrukkinn að reyna að segja “Hólmfríður”.

Já, þetta með steikina og humarinn… þú ert ekki sú fyrsta sem kemur auga á þetta :-)

5 07 2010
Sonja

Mmmm…. nú er ég sko svöng og ekki minnst í íslenskar pönnsur;-) Til hamingju með áfangann, fína einkunn og þessar flottu myndir!

5 07 2010
Gunnar Freyr

Takk, Sonja :-)

5 07 2010
Gestir og ferðalög « Hófí í Victoria, BC

[...] sagt verið nóg að gera hjá okkur á Fasanatröð.  Gunni lauk við lokaverkefnið sitt – matarmyndaportfólíó – og ég fékk að aðstoða aðeins við það.  Elsku Sunna bróðurdóttir kom til okkar í [...]

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.